Áramótaheit, hvað er nú
það??? 
Jæja, þá eru
jólin “búin” og erum við sko heldur betur búin að hafa það
huggulegt. Aðfangadagur var bara góður, með göngutúr í blíðunni,
eldamennskunni, átinu og pökkunum. Stelpurnar voru mjög spenntar
þetta árið og máttu nánast ekki vera að því að borða, nema
Perla Dögg, hún borðaði vel af humrinum sem var í
forrétt.
Á jóladag lágum við í leti, suðum
hangikjötið í rólegheitum og kíktum aðeins nánar á jólagjafirnar
Annar í jólum var nú líka aldeilis fínn, en þá fórum við í mjög
góðan göngutúr áður en við borðuðum afganga síðustu tveggja daga
ásamt þeim Gunnu & Fylki og Dísu &
Snorra. Þetta varð hið huggulegasta kvöld og leið það
hratt að við náðum ekki einu sinni að taka spil, eins og áætlað
hafði verið
En það verður vonandi haldið spilakvöld í staðinn
fljótlega.
Síðan erum
við bara búin að vera að slæpast í fríinu á milli hátíða, þ.e.
allir nema Stebbi sem er á fullu að vinna í
verkefninu sínu, sem hann á að skila 4. janúar. Slæpast og ekki
slæpast, auðvitað fór einn dagur ekki í slæping, heldur jólamessu
og skírn. Hann Knútur Heiðberg var skírður í
jólamessunni okkar þann 28. desember (brúðkaupsdagur Mömmu
& Óskars, 1999) ásamt henni Sögu
(Gauta- & Stefaníudóttur). Og eftir
herlegheitin í kirkjunni var haldið á jólaball íslendingafélagsins
þar sem var sko fullt borð af þvílíkum kræsingum, ummmm...
ljúffengt. Það sem reyndar skyggði aðeins á þennan dag var það að
hann Knútur "litli" hafði sofið mjög illa nóttina
áður og var með bullandi hita um morguninn. Við skelltum í hann
stíl áður en við fórum í krikjuna, enda var hann rólegur og
yfirvegaður yfir þessu öllu saman. Næstu nótt á eftir rauk hann
aftur upp í mikinn hita svo að ég ákvað að fara með hann til læknis
daginn eftir. Og viti menn, ekki var barnið að kvarta að
ástæðulausu, hann var kominn með eyrnabólgu í bæði eyrun, sem þýðir
það að fyrsti pensilínskammturinn hans er kominn í hús
En hann
er allur annar núna, svo að þetta hlýtur að vera farið að virka á
hann greyið.
Í dag finnst
svo veðurguðunum kominn tími til að losa okkur við blíðuna og sjá
okkur fyrir roki og rigningu í staðinn, ekki sérlega spennandi það.
Vona bara að það verði betra á morgun því að þetta er ekki besta
veðrið fyrir áramótabomburnar sem mér finnst svo gaman að sjá á
gamlárskvöld.
En ætli
þetta verði ekki bara síðasta færslan mín á þessu ári.
Svo að ég vil
bara óska ykkur, lesendur góðir,
Gleðilegs og
farsæls komandi árs.
Begga
P.s. Ég veit
hvað áramótaheitið ykkar getur verið... að vera duglegri að
kvitta á síðuna hennar Beggu
